ForsíðaNemendurÞjónustaUm skólann
Samvinna - Traust - Virðing
Forsíða :: Þjónusta :: Eineltisáætlun
Prenta vefsíðu

 

Viðbragðsáætlun vegna eineltismála

 

Einelti er ekki liðið í Grundaskóla.  Allir eiga rétt á að þeim líði vel í skólanum.

 

Fyrirbyggjandi aðgerðir:

Fjölbreytt fræðsla fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn.

Eineltiskönnun er lögð fyrir að vori annað hvert ár (ár sem enda á oddatölu, næst 2011).

 

Meðferð máls:

Málsmeðferð felst í þremur þrepum:

·         greiningarvinnu

·         lausnavinnu og

·         eftirfylgni.

Foreldrar eða aðrir sem telja einelti til staðar eða verða vitni að slíku eru hvattir til að hafa strax samband við umsjónarkennara eða skólastjórnendur.

Þegar grunur vaknar um einelti er umsjónarkennurum ætlað að vinna að greiningu og koma með tillögu að lausn. Náist ekki viðunandi lausn með aðkomu umsjónarkennara er máli formlega vísað til eineltisteymis / nemendaverndarráðs til áframhaldandi úrvinnslu og upplýsingaöflunar.

Í eineltisteymi skólans sitja fulltrúar í nemendaverndarráði (skólastjóri, skólasálfræðingur, skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og verkefnastjóri í sérkennslu) og verkefnisstjórar stiga.

Á öllum stigum máls skal viðhöfð sama málsmeðferð, þ.e. þau þrjú þrep sem nefnd hafa verið. Gerð verður grein fyrir málsmeðferðinni hér á eftir.

 

Greiningarvinna

Kennari og /eða eineltisteymi hefur vinnslu máls þegar formleg tilkynning um það hefur borist til skólans. Miðað er við að fá fram sem gleggsta mynd af öllum hliðum málsins í upphafi.  Tveir eða fleiri taka viðtöl við alla málsaðila. Viðmælanda (nemanda / foreldri / starfsmanni ) er heimilt að hafa mér sér trúnaðarmann eða annan aðila.

Snerti mál einhvern sem situr í eineltisteyminu skal hann víkja úr því. Viðtöl eru tekin við bæði þolanda / þolendur og geranda /gerendur. Farið er yfir stöðu mála. Ef nauðsyn krefur er aflað frekari upplýsinga  m.a. með viðtölum. Leita skal til utanaðkomandi aðila við úrvinnslu mála gerist þess þörf. Skriflegri greinargerð um málavöxtu skal skilað til eineltisteymis.

 

Lausnavinna

Miðar að því að finna viðeigandi lausn sem allir málsaðilar geta sætt sig við. Hún felst í viðtölum við málsaðila – ýmist saman eða hvorn / hvern fyrir sig, allt eftir eðli málsins. Auk þess er rætt við kennara , skólastjórnendur og foreldra  eftir atvikum. Gerð er tillaga að áætlun í samráði við málsaðila, foreldra og kennara. Skrifað er undir sáttasamning sem allir fella sig við.

Gerist þess þörf er leitað til utanaðkomandi aðila við úrvinnslu mála, t.d. ef þörf er á stuðningsvið-tölum eða öðrum úrræðum.

 

Eftirfylgni

Með markvissri eftirfylgni er miðað að því að tryggja betri líðan málsaðila og að koma í veg fyrir að einelti eða áreitni endurtaki sig / haldi áfram.

Eftir einn mánuð boða umsjónarkennarar eða fulltrúar eineltisteymis hvern málsaðila á fund til að kanna stöðu mála. Komi í ljós að einelti, áreitni eða vanlíðan sé enn til staðar skal funda með málsaðilum til að fara yfir næstu skref.

Eftir þrjá mánuði fara umsjónarkennarar eða fulltrúar eineltisteymis aftur yfir málið og ef ellt er í eðlilegum farvegi telst málsmeðferð lokið. Það skal kynnt með formlegum hætti. Ef eineltis- eða áreitnihegðun er enn til staðar skal taka málið upp að nýju og fjalla um það.

 
Grundaskóli | Espigrund 1 | 300 Akranes | Sími 433 1400 | grundaskoli@akranes.is