Nemendur

Gildin okkar

Menntun - Gleði - Umhyggja - Framfarir

Curabitur tempus sit amet quam in lacinia. Maecenas quis vehicula neque, eu volutpat ex. Integer nec purus quis nisl efficitur egestas sit amet eget nibh. Vestibulum pellentesque scelerisque ligula, vulputate vehicula nisi dignissim non.

Í upphafi skólaárs Grundaskóla, í ágúst 2024, eru um 700 nemendur í 31 bekkjardeild. Í öllum árgöngum eru þrjár bekkjardeildir. Skólinn skiptist í þrjú stig, yngsta stig, miðstig og unglingastig. Þrátt fyrir að þröngt sé stundum á þingi, er skólastarfið blómlegt og skapandi. Starfsfólk skólans er um 120 talsins og þar af eru 31 umsjónarkennari.

Bekkjafundir

Gert er ráð fyrir að umsjónarkennari haldi  bekkjarfundi reglulega þar sem rædd eru þau málefni sem snerta bekkinn og starfið innan hans.

Nemendaráð

Nemendaráð í unglingadeildum velur sér forystu og starfsmenn í kosningum að hausti. Þá eru einnig kosnir tveir fulltrúar úr hverjum bekk í nemendaráð. 

Skólaferðalög

Foreldrar skipuleggja fjáröflun í samstarfi við kennara. Fjáröflun á kaffihlaðborði á árshátíð og í nemendasjoppu. Einnig er fjáröflun að hluta í morgunmóttökum með brauðbollu- og kaffisölu í svokölluðum morgunmóttökum.   

Félagsmiðstöð

Á opnu húsi viljum við að allir hafi gaman og viðmiðið er að unglingar viti hvað má og hvað má ekki án þess að taka þurfi það sérstaklega fram hverju sinni.