Deildarstjóri Grundasels er Berglind Ósk Guðmundsdóttir
Sími: 854-1324
Netfang: fristund(hja)grundaskoli.is
Frístundaheimilið Grundasel er starfrækt fyrir börn í 1. – 2. bekk í Grundaskóla. Foreldrum/forráðamönnum gefst því kostur á að skrá börnin í skipulagt frístundastarf, eftir að skóladegi lýkur.
Haustið 2017 var sú breyting gerð á starfi Grundasels að nemendur í 3. og 4. bekk fara í frístund í Þorpinu, félagsmiðstöð Akraneskaupstaðar.
Frístund er opin til kl. 16:15 alla daga sem skólinn starfar, einnig á skipulagsdögum kennara. Lokað er í vetrarfríum, lögbundnum skólafríum og á skipulagsdögum frístundaheimilinna sem er einn dagur á önn (veturinn 2024-2025 eru það dagarnir 18.september 2024 og 20.febrúar 2025). Á haustin byrjar frístund sama dag og skólastarf hefst og lokar á vorin á síðasta skóladegi fyrir sumarfrí.
Grundasel er staður þar sem við viljum fyrst og fremst að börnunum líði vel, finni fyrir öryggi og unnið sé faglegt starf. Í Grundaseli vinnur starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn sem skilar sér í metnaðarfullu og fjölbreyttu starfi. Við leggjum áherslu að efla sjálfsmynd barna, sjálfstraust og unnið er markvisst með virðingu í samskiptum. Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf, sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Í Grundaseli leggjum við mikinn metnað í að bjóða uppá skemmtilegt klúbbastarf, allir finni eitthvað við sitt hæfi og ávallt stendur til boða frjáls leikur þar sem börnin efla bæði áhugasvið sitt og félagsfærni. Þá förum við í skipulagða og frjálsa útiveru á degi hverjum.
Kaffitímínn í frístund er mikilvægur þar sem við erum með dugleg börn sem þurfa á hollu og næringarríku nesti á að halda. Við framfylgjum því með ávöxtum, grænmeti og ýmsu brauðmeti.
Gjaldskrá fyrir Frístund er háð ákvæðum bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar.
Foreldrar þurfa að lágmarki að greiða fyrir 20 klst. á mánuði (þó viðvera barns nái ekki 20 klst á mánuði).
1 klukkustund 402 kr.-
Síðdegishressing 157 kr.-
Einstæðir foreldrar fá 35% afslátt af dvalargjaldi Þeir þurfa að sækja um það sérstaklega.
Systkinaafsláttur:
Yngsta barn greiðir fullt gjald.
Annað barn greiðir 50% af gjaldi.
Þriðja barn greiðir 25% af gjaldi.
Sótt er um dvöl á frístundaheimilinum í gegnum Völu
https://innskraning.island.is/?id=valais&path=%2fvala-fristund-vetur