Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson var kynnt í Grundaskóla í gær. Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Óperan segir frá Baldursbrá sem kynnist sposkum Spóa. Þau ákveða að fara saman upp á fjallstind til þess að njóta útsýnisins en það reynist ekki einfalt mál. Þau fá Rebba til að grafa blómið upp og flytja það á efstu eggjar en þar vofir mikil hætta yfir. Næðingur og kuldi gera blóminu lífið leitt auk þess sem stórhættulegur hrútur eigrar þar um í leit að æti. Yrðlingar Rebba vilja ólmir sýna að þeir séu orðnir fullorðnir og hyggjast fella hrútinn en hann er þeim sýnd veiði en ekki gefin. Dýrin hyggjast bjarga Baldursbrá og flytja hana heim í gömlu lautuna sýna en svarta þoka og eðlislæg misklíð þeirra á milli virðist ætla að koma í veg fyrir að blómið lifi ferðalagið af. Meðfylgjandi eru myndir frá sýningunni og yngstu börnin fylgdust spennt með :)
Espigrund 1
Sími: 433 1400
Netfang: skrifstofa(hjá)grundaskóli.is
Opnunartími skrifstofu:
Mán. - fim. 07:30 til 15:30.
Föstudaga til 13:25.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: www.mentor.is / 433 1400 / skrifstofa(hja)grundaskoli.is