Góðgerðardagur til styrktar hjálparstarfi í Malaví er á fimmtudag
Upplýsingar
Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk Grundaskóla verið að undirbúa svokallaðan Malavímarkað sem fram fer í íþróttasalnum að Jaðarsbökkum, fimmtudaginn 23. nóvember og hefst klukkan 11:30 og lýkur um klukkan 13:00.
Hvað gerist þá
Til sölu verður fjölbreytilegur varningur sem búinn er til af nemendum Grundaskóla en allur ágóði rennur til styrktar skólastarfi og hjálparstarfi fyrir ungar konur og börn í Malaví, einu af fátækustu ríkjum heims. Þennan dag geta gestir rölt á milli sölubása, rætt við nemendur og starfsfólk.
Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir í Grundaskóla og við ætlum að blása gleði og bjartsýni um allt samfélagið okkar. Hér mun fólk vonandi finna hreinan tón, orku og bjartsýni og einlægan vilja til að gera heiminn okkar betri.
Espigrund 1
Sími: 433 1400
Netfang: skrifstofa(hjá)grundaskóli.is
Opnunartími skrifstofu:
Mán. - fim. 07:30 til 15:30.
Föstudaga til 13:25.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: www.mentor.is / 433 1400 / skrifstofa(hja)grundaskoli.is