Frétt frá 3.bekk

 
Í dag fengum við í 3. bekk góða heimsókn. Hann Þráinn slökkviliðsstjóri mætti til okkar með skemmtilegar fréttir. Einn úr okkar hópi hafði verið dreginn út í árlegri eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna. Getraunin er ætluð fyrir nemendur í 3. bekk. En í desember síðast liðnum fórum við í heimsókn á slökkviliðsstöðina og fengum fræðslu um eldvarnir. Í kjölfarið fengum við bæklinga til að fara með heim og getraunablað sem við áttum að svara og skila inn til kennara sem sendi síðan svörin áfram.
Það var síðan Dagur Óli Ragnarsson sem var svo heppinn að vera dreginn út. Hann var að vonum glaður með vinninginn og þakkaði Þránni kærlega fyrir sig. Í vinning var bakpoki, buff, reykskynjari og viðurkenningarskjal fyrir þátttöku.
Til hamingju Dagur Óli!