Helgina 15. - 17. mars verður Landsmót barna- og unglingakóra haldið í Grundaskóla á Akranesi. Mót eins og þessi eru haldin á vegum Tónmenntakennarafélags Íslands og KórÍs-Landssamtaka barna- og ungdómskóra á Íslandi annað hvert ár á mismunandi stöðum á landinu og nú er komið að Akranesi.
Það er eldri hópur Skólakórs Grundaskóla sem er gestgjafakór í ár og stjórnandi kórsins, Valgerður Jónsdóttir, heldur utan um skipulag og framkvæmd mótsins fyrir hönd TKÍ, KórÍs og Grundaskóla. Von er á um 250 söngglöðum krökkum frá 5. bekk og uppúr en þau munu vinna saman í söngsmiðjum og halda svo lokatónleika í Grundaskóla á sunnudeginum kl. 13.30. Flestir eru kórarnir af suð-vesturlandi en nokkrir þeirra koma lengra að t.a.m. einn frá Akureyri.
Áhersla er lögð á að tengja mótið við bæjarlífið á Skaganum þannig að bæjarbúar geta átt von á að rekast á kórana á flakki um bæinn á laugardeginum. Þá koma nokkrir kóranna fram á Dvalarheimilinu Höfða og í Akraneskirkju auk þess sem lokatónleikarnir eru öllum opnir.
Tónlistin sem unnið verður með er að hluta til eftir Skagafólk og leitað var til tónlistarfólks og kennara á Akranesi með ýmislegt tengt mótinu auk þess sem stjórnendur kóranna koma að kennslu og hljóðfæraleik. Á mótinu æfa kórarnir saman nýtt tónverk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, verkið heitir Fögnuður og var samið serstaklega fyrir mótið.
Allir eru hvattir til að mæta á tónleikana á sunnudaginn kl.13.30 í sal Grundaskóla og kynna sér öflugt tónlistarstarf barna- og ungdómskóra hér á Íslandi.
Espigrund 1
Sími: 433 1400
Netfang: skrifstofa(hjá)grundaskóli.is
Opnunartími skrifstofu:
Mán. - fim. 07:30 til 15:30.
Föstudaga til 13:25.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: www.mentor.is / 433 1400 / skrifstofa(hja)grundaskoli.is