Litlu jólin verða föstudaginn 17. des.

Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt að gera breytingar á skóladagatali grunnskólanna þannig að heimild er fyrir að færa litlu jólin frá mánudeginum 20. des. yfir á föstudaginn 17. des. Ástæðan er fyrst og fremst sú að ef smit kemur upp á skóladeginum 20. desember mun það þýða að einhverjir starfsmenn skólans, nemendur og fjölskyldur verða að vera í sóttkví yfir hátíðardagana (sbr. reglur um fimm daga sóttkví).

Útfærslan í Grundaskóla verður með þeim hætti að litlu jólin og stofujól verði föstudaginn 17. desember frá kl. 14:00-15:30/1600. Hver árgangur formar skipulag hjá sínum árgangi s.s. varðandi kerti, veitingar og dagskrá og verða þær upplýsingar sendar til foreldra síðar.

Um morguninn er skóladagur samkvæmt stundatöflu og gert ráð fyrir að nemendur fari heim á milli viðburða eða í frístund.

Bkv.

Skólastjórn Grundaskóla