Skákmót miðstigs fór fram föstudaginn 5. febrúar 2016

Skákmót miðstigsins fór fram á föstudaginn. Þá kepptu til úrslita bekkjarmeistarar í 5. – 7. bekk í stúlkna- og drengjaflokki. Keppnin var spennandi og allir stóðu sig mjög vel. Í stúlknaflokki var Arndís Lilja Eggertsdóttir í 7.VS hlutskörpust. Í 2. sæti varð Sólrún Lilja Finnbogadóttir í 7.VH og 3. sæti varð Hafrún Tinna Hafsteinsdóttir 5.SÓ.

Í drengjaflokki var Olaf Zablocki 7.VH í 1. sæti, Ólafur Ían Brynjarsson 6.CBR í 2. sæti og í því þriðja lenti Ingibergur Valgarðsson 7.VS.
Keppendurnir voru: 7.bekkur: Olaf, Ingibergur, Björn Viktor, Hekla María, Sólrún Lilja og Arndís Lilja. 6.Bekkur: Ólafur Ían, Ingi Þór, Baldur Páll, Ragnheiður, Andrea og Friðmey. 5.bekkur: Haukur, Hjalti, Daði, Katrín María, Berglind og Hafrún.