Þjóðahátíð Vesturlands

Í gær var haldin þjóðahátíð í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Þar kom saman fjölbreyttur hópur frá ólíkum menningarheimum.

Dagskráin var vönduð og fjölbreytt. Söngur, dans, listaverk og góðgæti voru meðal þess sem í boði var.

Grundaskóli átti fulltrúa á svæðinu en nokkrir starfsmenn tóku þátt í hátíðinni.