"Tölvu- og skjánotkun barna og unglinga: Taktu stjórnina!"

Eru vandamál á þínu heimili varðandi skjá- eða tölvunotkun?
Ert þú við stjórn á þínu heimili þegar kemur að skjá- eða tölvunotkun barnsins þíns?
Vilt þú fá betri yfirsýn yfir skjá- og tölvunotkun barnsins þíns?
Vilt þú vita hvað er heilbrigt viðmið þegar kemur að skjá- og tölvunotkun barnsins þíns?
Vilt þú fá verkfæri til að stuðla að hóflegri skjá- og tölvunotkun barnsins þíns?
Vilt þú læra leiðir til að takast á við vanda tengdan skjá- og tölvunotkun barnsins þíns?
Ef þessar spurningar vekja athygli þína þá er þetta námskeið, sem Mikils virði stendur fyrir, mjög líklega eitthvað fyrir þig. Námskeiðið er sniðið að foreldrum og öðrum sem koma að málefnum ungmenna og vilja fræðast um einkenni óheilbrigðrar tölvu- og skjánotkunar þeirra og læra aðferðir til að sporna gegn henni.
Rannsóknir benda til þess að óhófleg skjánotkun barna og unglinga geti haft alvarlegar afleiðingar eins og þessar:
- Barnið eyðir stórum hluta af frítíma sínum við skjá. - Barnið kýs tölvuleiki fram yfir samverustundir með fjölskyldu og vinum. - Barnið segir ósatt um þann tíma sem það hefur verið í tölvunni og laumast til að fara í hana. - Minnkaður áhugi hjá barninu á öðrum tómstundum og íþróttum. - Barnið á erfitt með að fara eftir reglum heimilisins um tölvutíma. - Barnið getur orðið dapurt og pirrað þegar það er ekki í tölvunni. - Svefntruflanir.
Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 20. september frá kl. 18-21 í Tónlistarskólanum á Akranesi, Dalbraut 1. Skráning fer fram í síma: 8619996 og á netfanginu gudrunkatrin@mikilsvirdi.is og lovisamaria@mikilsvirdi.is.
Verð: 9.900 kr.
Kennarar námskeiðisins eru:
Guðrún Katrín Jóhannesdóttir Félagsfræðingur og ráðgjafi hjá Mikils virði
Lovísa María Emilsdóttir Félagsráðgjafi, MA og ráðgjafi hjá Mikils virði
www.mikilsvirdi.is