Á vef embættis landlæknis er að finna tilmæli vegna hrað- og sjálfsprófa.
Eins og þar kemur fram þá stytta þau próf ekki einangrun eða sóttkví og einnig er ætlast til að einstaklingar sem eru með covid einkenni fari í einkennasýnatöku hjá heilsugæslu, þar sem framkvæmd eru PCR-próf sem gefa bestu og áreiðanlegustu niðurstöðuna.
Skólinn mun því áfram senda nemendur heim ef þeir koma í skólann með flensueinkenni (covid einkenni) jafnvel þó að neikvæð niðurstaða hafi fengist úr hrað- eða sjálfsprófi.
Espigrund 1
Sími: 433 1400
Netfang: skrifstofa(hjá)grundaskóli.is
Opnunartími skrifstofu:
Mán. - fim. 07:30 til 15:30.
Föstudaga til 13:25.
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: www.mentor.is / 433 1400 / skrifstofa(hja)grundaskoli.is