Við byggjum upp leiksvið

Söngleikurinn Hunangsflugur og Villikettir verður frumsýndur í apríl í sal Grundaskóla. Til þess að það sé gerlegt þarf að byggja upp heilt leiksvið og skapa breyttar aðstæður í skólabyggingunni í anda þess tíma sem fjallað eru um í söngleiknum. Í dag létu nemendur og starfsmenn verkin tala og stóðu í stórræðum við flutning á vörubrettum o.fl.

Ævintýrin eru að gerast, gott fólk.